Síðan er í vinnslu.

Håg Capisco 8106

Heim / Stólar / Skrifborðsstólar / Håg Capisco 8106

Sá fjölhæfi, besta staðan er sú næsta sem þú ætlar í!  Virkjaðu líkamann með uppréttri stöðu, hallaðu þér aftur eða snúðu öfugt í stólnum til að hvíla bak. Fáanlegur í svörtu, rauðu og bláu. Mátaðu sýnishorn í verslun. Hönnuður: Peter Opsvik. Fótastell: svart á stólum á lager. Hægt að fá með hvítu, svörtu eða í sérpöntun. Skoðaðu aukahluti neðst á síðunni sem hægt er að bæta við, eins og fótkross, fótpall eða höfuðpúða.

164.175 kr.

Vandað polyester áklæði (>100.000 martindale), endurunnið Hönnuður: Peter Opsvik Að sérpanta stól í sérstökum lit tekur alla jafna um 8-10 vikur Fótastell: svart á stólum með svörtu áklæði. Grátt fótastell á rauðum og bláum. Hvernig viltu sitja núna? Capisco býður þér upp á að sitja: Hálfstandandi, upprétt, öfugt, á hlið, halla aftur. Fjölbreytileiki er málið. Capisco hefur það fram yfir aðra stóla að hægt er að sitja öfugt í honum til að hvíla bak. Einnig er hægt að sitja hátt (tillistanda) eins og við rafborð. Fjölbreytileiki í setustöðum gerir það að verkum að sjúkra- og iðjuþjálfar vísa oft á þennan stól. Capisco er með svansvottun. 95% endurvinnanlegur og 43% úr endurunnu efni. Capisco stólinn er líka hægt að fá án baks og er þá ódýrari. Tvær gerðir af setu eru fáanlegar, hnakkseta sem er lagervara eða seta bein að framan (sérpöntun). HÅG Capisco er afgreiddur með millihárri pumpu ef ekki er um annað beðið. 10 ára ábyrgð. Capisco er nærri 30 ára gömul hönnun sem þróast hefur með árunum frá Balance hnjáhvílustól Peters Osviks. Hann ýtir undir að bak notandanda sé í réttri stöðu. Góð kaup, mikið virði á lægra verði. Alvöru gæði 10 ára ábyrgð á öllum hlutum stólsins og áklæði! Sjáðu bækling frá framleiðanda hér   https://www.youtube.com/watch?v=Iq_QUkKMgHk&t=85s

Ármúli 22, 108 Reykjavík

Opnunartími 9-17 alla virka daga

533-5900

Vilt þú vera á póstlista?

Á póstlistanum okkar getur þú fengið upplýsingar um sértilboð og nýjar vörur sem voru að koma í hús.

© 2024 EG Skrifstofuhúsgögn